Fréttir úr feðraveldinu

Mansal og konur á flótta

Episode Summary

Í þætti kvöldsins kemur Drífa Snædal í heimsókn til Söru og Maríu og ræðir um mansalsmál og málefni flóttafólks í tengslum við nýju útlendingalögin og málefni flóttakvennanna sem verið hafa í fréttum undanfarið. Þátturinn Sósíalískir femínistar er í umsjón Söru Stef Hildardóttur og Maríu Pétursdóttur. Í þættinum ræða þær við fólk um málefni líðandi stundar í ljósi feminískrar baráttu en feminísk barátta er í grunninn barátta allra undirskipaðra hópa sem reyna að lifa af í kapítalísku feðraveldi fyrr og nú.